Snæfellsnes 6. fl kv

12.08.2011 16:12:05 / 6flokkurkvenna

Skallagrímsmóti aflýst

Vegna dræmrar þátttöku á Arionbankamótið sem átti að vera helgina 20-21 ágúst hafa Skallagrímsmenn ákveðið að fella mótið niður!


Góða skemmtun í Mosó;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2011 13:54:49 / 6flokkurkvenna

Nýtt merki!



Þá eigum við loks merki fyrir Snæfellsnes og mun það prýða nýju búningana okkar!

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2011 14:48:47 / 6flokkurkvenna

Nýjir keppnisbúningar!

Fótboltasamstarfið á Snæfellsnesi hefur ákveðið að taka upp nýtt kerfi í sambandi við keppnisbúninga.

Við erum að fá nýja búninga og nú munu iðkendur þurfa að kaupa sína keppnisbúninga.  Hver treyja verður merkt með nafni iðkenda og keppnisnúmeri en athugið að hvert númer getur bara verið á einni treyju í hverjum flokki.  Keppnissettið kostar 3000 kr og er í því treyja, stuttbuxur og sokkar! Tilboð þetta gildir til 31.júlí 2011.

 

Nýji keppnisbúningurinn verður til sýnis og sölu á eftirtöldum stöðum:

Í íþróttahúsinu í Ólafsvík (Víkingsbúðinni)föstudaginn 8.júlí og mánudaginn 11.júlí frá kl 9 til 17

Í íþróttahúsinu Grundarfirði þriðjudaginn 12.júlí frá kl 17:30 – 19:00

Í íþróttahúsinu Stykkishólmi miðvikudaginn 13.júlí frá kl 17:30-19:00

 

Hvað þarftu að gera?

Mæta á staðinn til þess að máta og panta.

Setja inná heimasíðuna hjá þínum flokki hvaða númer þú vilt fá. Mundu að skoða vel þannig að það sé ekki einhver annar búin að fá það númer sem þig langar í því aðeins einn í hverjum flokki getur verið með hvert númer. Númerin geta verið frá 1 upp í 99.  Kerfið er þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Mæta þegar þið fáið að vita að keppnisbúningarnir eru tilbúnir fá ykkar sett og borga 3000 kr.

 

Treyjurnar eru bláar með smá hvítum röndum. Þær verða merktar með nýju merki Fótboltasamstarfsins á Snæfellsnesi. Styrktaraðilar okkar verða einnig á treyjunum en það eru Landsbankinn og Fiskiðjan Bylgja HF. Þessir búningar eru frá Jako og eru eins og keppnisbúningar Mfl. Víkings.

 

Við vonum að þetta fyrirkomulag leggist vel í ykkur og að allir okkar iðkendur verði komnir í nýjar treyjur í ágúst. Munið að tilboðið gildir til 31.júlí 2011.  Mynd af treyjunni kemur vonandi á síðuna um helgina!

 

Hér fyrir neðan látið þið vita hvaða númer þið óskið eftir að verði á ykkar treyju. Munið fyrstur kemur fyrstur fær!

Ef einhverjar spurningar eru þá er hægt að hafa samband við Eygló í síma 863-0185 eða á netfangið eygloj@simnet.is


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.06.2011 11:39:06 / 6flokkurkvenna

Hnátumót KSI 2011

Það er víst komið að Hnátumóti KSI Þriðjudaginn 21. JÚNÍ  :lol: í þetta sinn spilum við í Keflavík og má sjá riðilinn okkar hér. Eins og þar sést er mótið á ÞRIÐJUDAG 8d
Það er því miður þannig að þetta er ekki langur fyrirvari og þurfum við því að byðja ykkur um að skrá hér í athugasemdir hvort barnið ykkar kemst í þessa leiki. Við gerum ráð fyrir að farið verði á einkabílum. Verið einnig duglega að deila þessu ykkar á milli ef einhver hefur fundið sólina og er ekki við tölvuna8)

Það þarf að láta vita fyrir föstudagskvöldið 17.júní hvort þær komist.

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.06.2011 14:54:34 / 6flokkurkvenna

Smábæjarleikar 2011

Þá eru nokkrir dagar í mótið og um að gera að fara gera sig klára. :d
Þeir krakkar sem eru skráðir í 6.fl eru:

ATH NÝTT   við breyttum skráningu þannig að stelpurnar í 6.fl spila með 5.fl kvenna.
Björg
Halla Sóley
Fehima
Benedikt Björn
Bjarni
Árni Ágúst
Örvar
kristmar Helgi
Bjartur Bjarmi
Ellert Þór
Birgir
Elín Dögg
María Ósk
Þráinn

Fararstjóri: Hafdís mamma Birgis
Þjálfari: Ejub
Búningar: Þuríður mamma Benedikts 

Nýtt -  Mótið er sett 18.júní kl 8:20 á íþróttavellinum. Á laugardag er boðið uppá morgunmat, hádegismat og kvöldmat en á sunnudag er bara morgunmatur og pylsugrill í hádeginu. Það er ljóst að þessi matur dugar börnunum ekki J en þar sem þau eru langflest með foreldrum sínum á svæðinu treystum við á að foreldrar sjái um að fylla uppí það sem vantar J - Einnig hafa nokkrir framtaksamir foreldrar hafa útbúið vallarnesti fyrir krakkana í 6.fl 8|

Það koma frekari upplýsingar um leið og þær berast þannig að fylgist vel með þessari færslu hún gæti breyst.

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2011 09:52:40 / 6flokkurkvenna

KSI dagur í Grundarfirði

Þriðjudaginn 24.maí verður fótboltadagur á Snæfellsnesi. Við fáum heimsókn frá höfuðstöðfum KSI og munu þeir færa okkur gjöf frá KSI. Einnig munu mæta á svæðið einhverjir landsliðsmenn og/eða konur!

Fyrirkomulag

Þið mætið á Grundarfjarðarvöll kl 16:00 þar munu þjálfarar okkar taka á móti ykkur. Þjálfarar verða búnir að setja upp stöðvar þar sem einhverjar æfingar verða.

Við hvetjum ykkur öll til þess að mæta.

Það verður einnig hægt að panta og máta Snæfellsnesgallann.

Það væri gott ef þið staðfestuð mætingu þannig að við vissum ca hvaða fjölda við værum að búast við.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2011 06:34:23 / 6flokkurkvenna

Faxaflóamótið

Faxaflóamótið er sunnudaginn 15.maí á Varmárvelli og er mæting kl 9:00
Þær sem eru skráðar eru:
Fehima
Halla Sóley
María Ósk
Birta
Björg
Elva Björg
Birgitta
Áslaug Stella
Brynja Gná

Þið þurfið að muna eftir takkaskóm og legghlífum ásamt bláu sokkunum.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2011 12:34:13 / 6flokkurkvenna

Samæfing 12.maí

Samæfing verður á gerfigrasinu í Ólafsvík fimmtudaginn 12.maí kl 15:008|

Faxaflóamótið á sunnudag.

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2011 16:06:59 / 6flokkurkvenna

samæfing

Nú er loks komið að samæfingu.
Æfingin verður á Hellissandsvelli miðvikudaginn 4.maí kl 16:30.

Faxaflóamótið er svo á sunnudaginn 15.maí á Varmárvelli. Leikina má sjá hér

Gaman væri ef þið mynduð staðfesta mætigu á samæfinguna. Það er líka um að gera að virkja stelpurnar sjálfar í að fylgjast með síðunni:lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2010 20:48:27 / 6flokkurkvenna

Samæfing - uppskeruhátíð

Samæfing og uppskeruhátíð laugardaginn 23.október í íþróttahúsi Snæfellsbæjar

6.fl karla og kvenna mæta kl 11:00. Fyrst verður samæfing og eftir hana fá iðkendur viðurkenningu og veitingar.

Athugið að flokkaskiptingar miðast við skiptinguna í sumar. Í 6.fl eru því krakkar fæddir 2001 og 2000.

Gott er að láta vita hér á síðunni hvort þið mætið eða ekki :p
Gott að byrja starx á það að venja sig við síðuna :d

Takk fyrir sumarið og góðann fótboltavetur!



» 5 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 21:10:50 / 6flokkurkvenna

Hnátumóti lokið!








Þá er Hnátumótið búið og við enduðum í 7.sæti. Að vera númer 7 af 25 liðum er nú bara góður árangur verð ég að segja. Til hamingju með árangurinn :lol: Þið stóðuð ykkur vel!

Næst á dagskrá hjá ykkur er að vera duglegar að mæta á æfingar, minnka nammi og borða hollan og góðan mat:lol:
Takk fyrir samstafið:lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2010 20:04:57 / 6flokkurkvenna

Hnátumót úrslitakeppni!

Eins og þið munið þá komust við í úrslit Hnátumóts KSI fyrr í sumar:lol:
Úrlsitakeppnin fer fram nú um helgina á Smárahvammsvelli og má sjá leikina okkar hér
Mæting á Smárahvammsvöll kl 9:15

Þetta er sterkt mót og við þurfum að mæta vel stemmdar :haha:

Þær sem eiga að mæta eru:
Alma Jenný
Ólöf Erla
Unnur Eir
Samra
Regína
Diljá
Fehima
Halla Sóley
Elín Dögg
Birta
Kristín Olsen

Á laugardag kl 16:00 er landsleikur Ísland - Frakkland og erum við búin að fá miða á leikinn hjá KSI. Þið þurfið að staðfesta fyrir miðvikudagskvöld hvort þið ætlið með á leikinn og eins hvort að einhverjir foreldrar ætla með. Við fáum einhverjar fullorðinsmiða líka en við vitum ekki hversu marga þannig að fyrstur kemur fyrstur fær:lol:


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.08.2010 22:20:45 / 6flokkurkvenna

Samæfing

Samæfing á Ólafsvíkurvelli kl 14:30 þriðjudaginn 17.ágúst:$
ALLAR AÐ MÆTA!
Látið þetta berast til allra8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2010 08:53:09 / 6flokkurkvenna

Mótið á laugardag!

Mæting á Tungubakka kl 8:45 stundvíslega:lol:
Fyrsti leikur okkar er kl 9:30 og eru mótslok áætluð kl um kl 13:00

Verum vel klæddar því það spáir ekki sól og blíðu:lol: einnig er gott að hafa með sér nesti.


Minnum á að vegna hraðmótsfyrirkomulagsins er ekki haldið sérstaklega utanum stöðu liða í riðlum og ekki verða veitt verðlaun fyrir sæti heldur fá allir þátttakendur samskonar viðurkenningarpening auk annarra gjafa. Úrslit verða þó skráð og aðgengileg á upplýsingatöflu í vallarhúsi (hámark 3 marka munur skráður).


Hlökkum til mótsin sem verður góð æfing fyrir úslitakeppni Hnátumótsins sem haldin verður 21. og 22. ágúst á Smárahvammsvelli!

Áfram Snæfellsnes:d


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2010 09:06:56 / 6flokkurkvenna

Samæfing föstudag!

Það verður samæfing á Grundarfjarðarvelli kl 15:15 á föstudag:$
Allar að mæta:lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Myndir af stelpunum.
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 18937